Innlent

Aukin virkni í gosinu

Árni Sæberg skrifar
Þorvaldur Þórðarson sér helst þrjár sviðsmyndir í stöðunni.
Þorvaldur Þórðarson sér helst þrjár sviðsmyndir í stöðunni. Vísir/Arnar

Eldfjallafræðingur segir merki uppi um að virkni hafi aukist í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt. Landris í Svartsengi hafi stöðvast og kvika leiti nú beint upp á yfirborð úr dýpra kvikuhólfinu.

„Það virðist hafa orðið einhver aukning í virkninni í nótt. Eins og þetta sé í fasa fyrir það sem við erum búin að vera að segja. Þegar þetta grunnstæða kvikuhólf fyllist, eins og það er að gera núna, þá fer það kvikumagn sem var að flæða inn í það bara beint upp. Það mun bæta við flæðið úr gígnum. Mér sýnist það hafa gerst en þetta er engin dramatík,“ segir Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur í samtali við Vísi.

Gæti enn bæst við úr grynnra hólfinu

Hann segir kvikuflæði úr dýpra kvikuhólfinu hingað til hafa skipst nokkurn vegin til helminga milli grynnra kvikuhólfsins og eldgossins. Því fari flæðið úr gígnum nú úr um þremur rúmmetrum á sekúndu í sex rúmmetra á sekúndu.

„Þetta er nú engin stóraukning en þetta er aukning. Mér sýndist ég sjá á virkninni yfir nóttina að hún passi við það. Svo er spurning hvort að kvikugeymslan, sem við teljum að sé komin að þolmörkum, hvort kvika fari að flæða úr henni. Ef það gerist þá getur hún bæst við það flæði sem núna er að koma úr gígnum. Þá myndi það auka frekar í gosið á næstu dögum en ég hugsa að það verði engin mikilfengleg sýn. Engar stórar sprungur og miklir kvikustrókar, þetta verður rólegra ferli.“

Kvikan gæti líka storknað í hólfinu

Þó segir Þorvaldur einnig möguleika á því að kvikan fari ekki neitt úr hólfinu heldur einfaldlega storknað þar.

„Ef það verður raunin þá verður ekkert landsig í Svartsengi. Þá hættir landrisið og hlutirnir hægja á sér í rólegheitum og enda bara. Þannig að það eru ákveðin teikn á lofti um að þetta verði bara rólegt.“

Gosrásin gæti haldist opin

Hins vegar gæti það líka gerst að gosrásin haldist opin og gosið gæti úr gígnum til lengri tíma. 

„Þannig að þetta eru þessar sviðsmyndir sem ég sé úr þessu. Ég sé nú ekki að við séum að fara að fá eitthvað stórt sprungugos á einhverjum nýjum stað. En við getum aldrei útilokað neitt slíkt heldur. Það er alltaf möguleiki á því að kvikan hlaupi þarna úr og opni þá þessa gossprungu, sem hefur verið að opnast í þessum gosum, fari í gang í einhvern tíma og lognist svo út af.“


Tengdar fréttir

Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi

Virkni eldgossins við Sundhnúksgíga er með svipuðu móti og síðustu daga. Svo virðist sem mögulega hafi hægt á landrisi undir Svartsengi en náttúruvársérfræðingur segir þó of snemmt að túlka þau gögn sem liggja fyrir á þessari stundu. 

Líklegt að það styttist í brotmörk

Lögregla á Suðurnesjum fylgist grannt með stöðu mála við Grindavík, þar sem hrauntunga hóf að renna yfir varnargarð í morgun. Þá telja vísindamenn að annað eldgos gæti verið yfirvofandi á svæðinu hvað úr hverju.

Hraun mjakast yfir varnargarð

Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga hefur teygt sig yfir varnargarð norðan við Grindavík. Hún rennur hægt og engin hætta stafar af henni enn sem komið er.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×